mánudagur, nóvember 06, 2006

Hrós og óhróður

Þeir sem eiga hrós skilið:
  • Inga og Árni fyrir að vera ógeðslega dugleg í íbúðinni
  • Mamma fyrir að vera alltaf sjúklega dugleg í MBA náminu
  • Bíómyndinni Lake House fyrir að vera rosa rómantísk!
  • Guðfinna fyrir að lenda í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna
  • Pabbi fyrir að baka bestu pizzu í heimi!
  • Tengdó fyrir að vera massa dugleg í afeitruninni!
  • Björgunarsveitirnar - fyrir að fatta upp á Neyðarkalli :)
  • Júlli - fyrir að vera beztur í heimi og þola mig í 3 ár!
...og örugglega miklu miklu fleiri!

Þeir sem eiga óhróður skilið:
  • Við fjórar frænkurnar fyrir að hittast næstum ALDREI!
  • Sölumaðurinn í Heklu fyrir að gleyma mér tvisvar!
  • Blaðamenn Extra Bladet fyrir alla vænisýkina
  • Nammi fyrir að vera sjúklega gott!!!
..og örugglega miklu miklu fleiri!

þriðjudagur, október 24, 2006

Vinnavinnavinnavinna

Nú er lítið annað gert en að vinna vinna vinna og vinna! Hef ég oft verið busy en ég held ég hafi þó aldrei verið jafn ofurupptekin eins og akkúrat núna! En er ekki alltaf sagt að ef maður vilji láta eitthvað gerast þá eigi maður að tala við busy manneskju??? Eins gott samt að drekkja sér ekki í þessu öllu saman en það styttist nú óðum í hið langþráða sumarfrí - Flórída eftir aðeins 3 vikur - og þá verður sko slappað af og notið lífsins újeeehhh!

þriðjudagur, október 17, 2006

Bandaríkjamenn

Það er margt hægt að segja um Bandaríkjamenn. Þeir eru sennilega ein dáðasta þjóð í heimi - af sjálfum sér! ...en á sama tíma hataðasta þjóð í heimi - af öllum öðrum! Þeir eru frægir fyrir feitasta fólk í heimi, frægasta fólk í heimi og jah... eflaust mjög margt annað sem ég ætla ekki að telja upp hér.

Ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er nú samt annars eðlis. Ég rak augun í það í morgun að Bandaríkjamenn munu í dag verða rúmlega 300 milljónir talsins. Þeir eru (þegar ég skrifa þessi orð) nákvæmlega 299.999.531 og m.v. þær forsendur að þar í landi fæðist nýr Bandaríkjamaður á 7 sekúndna fresti, deyji á 13 sekúndna fresti og að innflytjendum af erlendum uppruna fjölgi (nettó) um einn á 31 sekúndna fresti, þá munu þeir rjúfa 300 milljóna markið í dag! Þeir sem vilja fylgjast "live" með þessu gerast geta smellt hér.

fimmtudagur, september 28, 2006

Fjölskyldupakkinn!

Jahérna! Rosalega er maður fljótur að detta inn í fjölskyldupakkann! Eftir að bumbulíus varð að veruleika hefur maður lítið annað gert en að pæla í öllu sem snýr að því. Fyndið hvað lífið tekur snögga 180° beygju þegar svona kemur upp.

Maður hættir auðvitað að láta sjá sig á djamminu - og það sem verra var - áður en leyfilegt var að uppljóstra leyndarmálinu náði maður að fá á sig "beiler" stimpilinn ógurlega hvað skemmtanalífið varðar. En hey þið efasemdamenn og konur - nú skiljið þið! :D

Svo þarf maður að fara að huga að praktísku málunum. Litli Skódi ljóti er t.d. ekki nógu bosmamikill til að rýma eitt stk. golfsett - hvað þá barnastól, barnakerru og allt tilheyrandi. Svo nú er maður farinn að líta svona aðeins í kringum sig - og viti menn - haldiði að "station" sé ekki bara orðinn álitlegur kostur - eitthvað sem ég hefði ALDREI séð mig kaupa fyrir 6 mánuðum!!! Þá erum við að tala um alvöru fjölskyldukerru sjáiði - fullbúinn og með allan pakkann. Næsta skref er bara að kaupa svona "skuggaskerm" til að skýla barninu fyrir sólinni - helst kisulaga af því það er svo agalega krúttlegt!!! :Þ

Það sem mér finnst samt skrýtnasta tilhugsunin er ekki að erfingi sé á leiðinni, að við munum eignast barnið eftir ca. hálft ár eða neitt þannig - heldur að lítið kríli muni, eftir svona rúmlega 1 ár, fara að kalla mig mömmu!!! Úff úff úff!

Fyrir þá sem vilja fylgjast með er ég búin að setja inn tengil hérna undir "Gríslingar" á vefsíðuna sem tileinkuð er baunagrasinu en einnig er hægt að smella hér.

þriðjudagur, september 26, 2006

Ferlíkið í stofunni

Þegar ég var lítil fannst mér voðalega gaman að fela mig undir sófanum í stofunni. Oftast var ég að fela mig fyrir ímyndaða ferlíkinu sem ég var oft í feluleik við en stundum var það líka bara til að fela mig fyrir pabba og mömmu áður en ég átti að fara í háttinn.

Ástæðan fyrir þessari bernskuminningu er sú að nú er komið nýtt ferlíki í stofuna. Ferlíkið er betur þekkt undir nafninu "Plasma" og er hvorki meira né minna en 42" stórt! Og nota bene, það eru ekki meira en nokkrir dagar síðan ég sagði "Við skulum bíða í tvö/þrjú ár með að kaupa plasma"!!! ...en svo dó sjónvarpið okkar í síðustu viku og svo heppilega vildi til að örfáum dögum síðar - þegar við vorum í sjónvarpsleit - bauðst okkur frábært starfsmannatilboð í gegnum móðurfélagið Dagsbrún og við ákváðum tjah... afhverju ekki bara að slá til!!!

fimmtudagur, september 21, 2006

Er Al Gore næsti forseti Bandaríkjanna???

Ég brá mér í bíó í gær og er orðin svo rosalega menningarleg að ég fór í annað skiptið á skömmum tíma á mynd sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni. Í gær varð myndin hans Al Gore fyrir valinu en hún fjallar um gróðurhúsaáhrifin og hvaða afleiðingar þau munu hafa á okkar ástkæru Jörð á næstu 50 til 100 árum.

Myndin olli mér síður en svo vonbrigðum - mér fannst hún raunar mjög góð og ég mæli eindregið með því að allir sjái hana. Ég var svo uppnumin af baráttuvilja í lok myndarinnar að það lá við að ég hefði sent menntamálaráðherra áskorun um að skylda menntaskóla til að sýna myndina. Ég vona eindregið að sýningum á myndinni verði haldið áfram eftir að kvikmyndahátíð lýkur en skv. fyrirfram auglýstri dagskrá er aðeins ein sýning eftir - kl. 20:00 í kvöld! ...nánar tiltekið í Háskólabíói...

Al Gore kemur auk þess skemmtilega á óvart í myndinni. Auðvitað voru klippt saman akkúrat hressustu augnablikin hans í myndina en samt - maðurinn er alls ekki jafn hræðilega leiðinlegur eins og fólk vildi vera láta þegar hann háði hatramma kosningabaráttu sína við núverandi Bandaríkjaforseta, hinn eldklára George W. Bush. Spurning hreinlega hvort Gore bjóði sig aftur fram fyrir næsta kjörtímabil og gjörsigri ekki bara??? ...sjáum til.

þriðjudagur, september 19, 2006

Bloggiddíblogg

Sælt og blessað verði fólkið. Long time no hear. Ég held svei mér þá að maður þurfi að fara að hætta þessu bara. Ég blogga hvort sem er ekki orðið nema á margra vikna fresti. Ekki það að það sé ekki nóg að gera hjá manni, meira svona leti við að skrifa held ég.

Ég er að deyja úr sumarfríslöngun, alveg farin að telja niður - núna eru tæplega 2 mánuðir í sumarfríið mitt!!! ...veiveivei...

Annars held ég að flestallir viti það nú orðið að það er lítil baun á leiðinni hjá okkur skötuhjúunum sem er væntanleg í heiminn þann merka dag 1. apríl á næsta ári. Sjæks... svo hef ég kannski gleymt að segja einhverjum sem alveg bara missir það núna! tíhíhí... Það er spurning hvort maður setji e.t.v. upp einhverja svona síðu fyrir þá sem vilja fylgjast með því - aldrei að vita nema svoleiðis "blogg" taki bara við af þessari - sjáum til - en ég læt ykkur allavegana fylgjast með.

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Bölvans gripdeild!

Haldiði að það hafi ekki verið brotist inn í bílinn hjá okkur á dögunum og tölvunni minni stolið! Ég sem passa mig alltaf voða vel að skilja aldrei neitt verðmætt eftir í bílnum þurfti akkúrat að gleyma tölvunni þennan eina dag og þá AUÐVITAÐ var einhver óprúttinn náungi sem mölbraut rúðuna á bílnum og hirti mína ofurverðmætu tölvu! Þó það hefði verið voða pirrandi og slæmt þá var það ekki verst að tölvunni minni hefði verið stolið heldur að öll gögnin mín væru horfin! Grmf...! Svo þurftum við í þokkabót að borga sjálf fyrir að brotist hefði verið inn í bílinn vegna þess að sjálfsábyrgðin "coveraði" skaðann! Life's a bitch!

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Verzló reunion

Nú styttist óðum í reunion 5 ára stúdenta frá Verzlunarskóla Íslands en ég er einmitt í þeim hópi. Búist er við miklu húllum hæi og þetta verður án efa einstaklega athyglisvert og skemmtilegt. Maður mun vafalaust hitta einn og annan úr fortíðinni og það verður eitthvað hlegið að gömlum grallarabrögðum. Eitt það skemmtilegasta við svona reunion er að sjá hvað fólk er að gera í dag, hvort allir líti ennþá eins út o.s.frv.

Ég er nú ekki enn búin að fjárfesta í miða en ég mun án efa gera það á næstu dögum.

Þið verzlingar sem slysist hérna inn getið kíkt á reunion slóðina með því að smella hér.

mánudagur, ágúst 21, 2006

Golf golf og meira golf

Það er ljóst að golfíþróttin er hreint út sagt stórhættuleg. Þá á ég ekki við líkamlegar hættur því ekki er mikil hætta á að togna, misstíga sig eða slíta krossbönd í hita leiksins þó að vísu sé alltaf ákveðin hætta á að fá grjótharða golfkúlu í hausinn. Nei, ég meina andlega. Þessi blessaða íþrótt hefur gjörsamlega heltekið hug og hjarta míns ástkæra. Ég er reyndar sjálf mjög hrifin af henni en þetta nær náttlega engri átt hversu ástfanginn maðurinn er af þessu. Hann klæjar í fingurnar á hverjum degi og tekur reglulega sveiflur heima í stofu, mér og fögrum uppáhaldshúsmunum til mikillar armæðu. Það er löngu ákveðið að í Flórídaferðinni okkar tilvonandi í Nóvember verði ekki bara farið einu sinni heldur að minnsta kosti tvisvar á glæsilegan golfvöll (sem er reyndar mjög spennandi) og sömuleiðis á að kaupa allar þær golfvörur sem enn hefur ekki verið fjárfest í á góðu verði. Já, núna er það bara golf og ekkert nema golf!